55% hlynnt veru Ólafs Ragnars í Sotsjí

Ólafur Ragnar ásamt keppendum Íslands úti í Sotsjí.
Ólafur Ragnar ásamt keppendum Íslands úti í Sotsjí.

Skiptar skoðanir voru á því hvort Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hefðu gert rétt eða rangt með því að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Sotsjí í Rússlandi. Af þeim sem tóku afstöðu í könnun MMR sögðu 55,1% að Ólafur Ragnar Grímsson hefði gert rétt, borið saman við 44,9% sem sögðu að hann hefði gert rangt. 54,1% sögðu að Illugi Gunnarsson hefði gert rétt en 45,9% að hann hefði gert rangt með því að vera viðstaddur opnunarhátíðina. 

Spurt var: „Telur þú að eftirtaldir íslenskir ráðamenn hafi gert rétt eða rangt með því að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikana í Sotsjí í Rússlandi?: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Svarmöguleikar voru: Gerði rétt, Gerði rangt og „Veit ekki/vil ekki svara“. 
Annars vegar tóku 80,6% afstöðu til spurningar um Ólaf Ragnar Grímsson og 78,8% til spurningar um Illuga Gunnarsson.

Munur á viðhorfi fólks eftir kyni og stjórnmálaskoðunum

Nokkur munur var því hvort fólki fannst íslenskir ráðamenn hafa gert rétt eða rangt með því að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Sotsjí í Rússlandi.

Hlutfallslega fleiri karlar en konur töldu að bæði Ólafur Ragnar Grímsson og Illugi Gunnarsson hefðu gert rétt með því að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Sotsjí í Rússlandi. Af þeim sem tóku afstöðu töldu 59,8% karla að Ólafur Ragnar Grímsson hefði gert rétt, borið saman við 49,2% kvenna. Til samanburðar sögðu 58,9% karla að Illugi Gunnarsson hefði gert rétt, borið saman við 48,0% kvenna.

Meirihluti þeirra sem studdu Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkinn taldi að bæði Ólafur Ragnar Grímsson og Illugi Gunnarsson hefðu gert rétt með því að vera viðstaddir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Sotjsí í Rússlandi en meirihluti þeirra sem studdu Samfylkinguna, Vinstri-græn, Bjarta framtíð og Pírata taldi að báðir hefðu gert rangt.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára  og eldri valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 983 einstaklingar 
Dagsetning framkvæmdar: 11.-15. febrúar 2014

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert