Dýrasta skip Íslands sjósett

Skip sem íslenska fyrirtækið Fáfnir Offshore lét smíða fyrir sig var sjósett í skipasmíðastöðinni Cemre í Tyrklandi í gær. Skipið er sérútbúið til að þjónusta olíuiðnaðinn í norðurhöfum, ekki síst til birgðaflutninga til og frá olíuborpöllum, er með þyrlupall og 850 fermetra þilfar.

Skipið er 89 metra langt og 18 metra breitt og er sérstaklega hannað til að athafna sig við erfiðar aðstæður á norðurslóðum, þ.m.t. til siglinga í ís.

Skipið fer nú í Havyard-skipasmíðastöðina í Leirvík í Noregi þar sem það verður fullbúið og gert er ráð fyrir að Fáfnir fái skipið afhent í ágúst næstkomandi.

Fyrsta verkefni skipsins verður að leysa af hólmi varðskipið Tý sem Fáfnir tók á leigu hjá Landhelgisgæslunni til að uppfylla samninga við norsk stjórnvöld um gæslu- og björgunarstörf á hafsvæðinu í kringum Svalbarða.

Fyrirtækið Fáfnir Offshore hefur haslað sér völl á sviði þjónustu við olíurannsóknir og olíuvinnslu á norðurslóðum og hyggst enn frekar færa út kvíarnar á þeim vettvangi. Fyrirtækið hefur gert samning við sýslumanninn á Svalbarða um gæsluverkefni í kringum eyjarnar næstu tíu árin og mun nýta hið nýja skip til þeirra verka.

Frétt mbl.is: Samningur um dýrasta skip Íslandssögunnar

Frétt mbl.is: Dýrasta skipið með 7 milljarða verkefni

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert