Lífið er núna en ekki í gær eða á morgun!

„Þú sækir ágætlega að mér, ég var að ganga út úr Klébergsskóla á Kjalarnesi,“ segir Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, á þessum ágæta febrúarmorgni. Þar var hann að halda fyrirlestur fyrir nemendur í tíunda bekk, eins og hann gerir í öllum skólum landsins.

Yfirskrift fyrirlestrarins er „Verum ástfangin af lífinu“ og fjallar hann um mikilvægi þess að unglingar axli ábyrgð á eigin velferð. „Boðskapurinn er sá að krakkarnir láti drauma sína rætast og séu óhræddir við að fara út fyrir þægindahringinn. Ég hamra á mikilvægi þess að lífið er núna en ekki í gær eða á morgun,“ segir Þorgrímur sem tekur gjarnan dæmi um afreksfólk á borð við Vilborgu Örnu Gissurardóttur pólfara og Ólaf Stefánsson handboltamann. Hann kennir nemendunum markmiðasetningu og skilur eftir fjórblöðung sem hver og einn á að fylla út. Þorgrímur fer líka gegnum það sem hann kallar „hjól lífsins“ og snýr að vináttu, hrósi og fleiru, auk þess að sýna nemendunum myndbönd.

„Í grunninn er þetta lífsleikni og ég held ég sé að mestu leyti að tala um sömu hluti og kennarar gera á hverjum degi en þar sem ég er gestur og krakkarnir þekkja mig sem rithöfund leggja þau einstaklega vel við hlustir. Það er dauðaþögn allan tímann, sama hvenær dagsins ég kem í skólana,“ segir Þorgrímur en fyrirlesturinn tekur 80 mínútur.

Um kvöldið stendur foreldrum til boða að hlýða á sama fyrirlesturinn svo þeir séu upplýstir um það sem verið er að tala um við börnin.

Verkefnið er skólakerfinu að kostnaðarlausu. Er sumsé hvorki á vegum sveitarfélaganna né menntamálaráðuneytisins heldur standa tvö fyrirtæki, Hagkaup og Bónus, straum af kostnaði við verkefnið. Líta á það sem part af framlagi sínu til samfélagsins.

Þorgrímur segir þessa vinnu gefa sér mikið. „Það eru forréttindi að fá tækifæri til að sá fræjum til unga fólksins sem vonandi blómstra fljótlega eða seinna. Unglingar á Íslandi eru flottir og dásamlegir karakterar.“

Lesa má viðtalið við Þorgrím í heild sinni í sunnudagsblaði Morgunblaðsins

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert