Siglir einungis eina ferð

Herjólfur
Herjólfur Sigurður Bogi Sævarsson

Herjólfur siglir einungis eina ferð í dag og mun hann sigla frá Vestmannaeyjum til Þorlákshafnar klukkan átta. Brottför frá Þorlákshöfn er síðan klukkan 11:45. Ástæðan er verkfall Sjómannafélags Íslands. Þetta kemur fram á vef Herjólfs.

„Sjómannafélag Íslands hefur boðað verkfall félagsmanna sinna sem vinna um borð í Herjólfi.

Verkfallið, sem nær til háseta, bátsmanna og þerna, hefst miðvikudaginn 5. mars nk. kl. 17:00 og stendur til kl. 08:00 alla virka daga auk þess sem ekkert verður unnið um helgar. Verkfallið mun hafa veruleg áhrif á áætlun Herjólfs.

Í lok síðasta árs gengu starfsmennirnir úr Sjómannafélaginu Jötni í Vestmannaeyjum í Sjómannafélag Íslands. Samtök atvinnulífsins fara með samningsumboð f.h. Eimskips vegna kjarasamninga um borð í Herjólfi. 

Sjómannafélag Íslands hefur í kröfugerð sinni krafist kauphækkana sem eru úr öllum takti við það sem aðilar vinnumarkaðarins hafa samið  um á síðustu mánuðum til að tryggja stöðugleika, halda niðri verðbólgu og auka kaupmátt. 

Þann tíma sem boðað verkfall Sjómannafélags Íslands stendur yfir mun Herjólfur sigla skerta áætlun og óvíst hve mikið Herjólfur og Víkingur munu geta siglt til Landeyjahafnar en það verður gert eins og aðstæður leyfa. 

Það er ljóst að þessar aðgerðir Sjómannafélags Íslands munu valda óþægindum fyrir Vestmannaeyinga. Eimskipafélagið mun gera sitt allra besta til að tryggja að samgöngur og vöruflutningar verði viðunandi með öllum mögulegum leiðum,“ segir í tilkynningu á vef Eimskip, sem rekur Herjólf.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert