Týr hefur skipt um ham

Týr í þurrkvínni. Grár litur hefur vikið fyrir rauðum og …
Týr í þurrkvínni. Grár litur hefur vikið fyrir rauðum og hvítum. Ljósmynd/Slippurinn

Búið er að mála varðskipið Tý í nýjum litum vegna leiguverkefnis sem skipið mun sinna á Svalbarða næstu mánuðina.

Varðskipið hefur algjörlega skipt um lit. Grái liturinn er horfinn en skrokkurinn orðinn rauður og stýrishúsið hvítt.

Verkið var unnið hjá Slippnum á Akureyri. Þar vinna margir stuðningsmenn Íþróttafélagsins Þórs og þótti þeim ekki verra að skipið skartar nú litum félagsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert