Ebba segir Pistorius vera niðurbrotinn

Ebba Guðný Guðmundsdóttir hefur undanfarna viku fylgst með réttarhöldunum yfir spretthlauparanum Oscar Pistorius sem fara fram í borginni Pretoríu í Suður-Afríku. Ebba hefur þekkt Pistorius náið frá árinu 2005, og hefur hann reynst Hafliða syni hennar vel, en báðir fæddust án sperrileggja, með stúfa fyrir neðan hné.

Ebba Guðný hefur farið í nokkur viðtöl í suðurafrískum fjölmiðlum, en það hefur vakið nokkra athygli að hún skuli hafa komið alla leið frá Íslandi til að sýna vini sínum stuðning. Í viðtali við fréttamann AFP-fréttastofunnar segir Ebba Guðný að kynnin við Pistorius hafi breytt lífi sonar hennar.

„Ég sagði við hann: Oscar, geturðu kannski tekið af þér fæturna og sýnt Hafliða að þið eruð eins. Ég var ekki viss um að sonur minn áttaði sig á því að þeir tveir væru eins,“ segir Ebba Guðný í samtali við fréttamann AFP-fréttastofunnar.

„Hann tók þá af, lyfti Hafliða upp og tók hann í fangið og sagði: Sjáðu Hafliði. Sjáðu fæturna á mér, fæturna á þér. Við erum eins,“ segir Ebba. „Sonur minn breyttist á þessu andartaki. Ég á honum [Pistoriusi] margt að þakka og það væri einkennilegt ef ég væri ekki hér.“

Ebba segir í viðtalinu að henni þyki erfitt að ræða um Pistorous. „Eins og ég sé að baktala hann. En það sem ég get sagt er að hann er niðurbrotinn.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert