Ekki hægt að selja Ísland allt árið

Frá Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Frá Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Af vef Vegagerðarinnar

Markaðsstofa Norðurlands, Ferðamálasamtök Þingeyjarsveitar, Húsavíkurstofa, Mývatnsstofa ehf og Markaðssvið Austurbrúar lýsa yfir áhyggjum og mótmæla því að snjómokstri milli Egilsstaða og Mývatnssveitar skulu hafa verið fækkað niður í tvo daga á viku.

„Ferðamennska um landið hefur farið vaxandi yfir vetrartímann og ljóst er að góðar samgöngur spila mikilvægt hlutverk í uppbyggingu ferðamannastaða og ferðaþjónustu,“ segir í yfirlýsingu frá þessum aðilum.

„Því er nauðsynlegt að bregðast við sem fyrst, þar sem ekki er hægt að selja Ísland allt árið ef grunnþjónustan eins og snjómokstur er ekki til staðar. Enginn ætlast til að vegir séu opnaðir í vitlausu veðri en um leið og það gengur niður er sjálfsagt að opna veginn. Við lýsum áhyggjum yfir þeim farvegi sem þessi mál virðast vera að fara í og skorum á stjórnvöld að hefjast nú þegar handa við að finna lausn á þessu máli, sem verði öllum til hagsbóta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert