Framhaldsskólanemar fá ókeypis aðgang að sundlaugum og listasöfnum í Reykjavík meðan á verkfalli framhaldsskólakennara stendur, samkvæmt tillögu sem samþykkt var samhljóða í borgarráði í dag.
„Það verður framlag Reykjavíkurborgar til að stuðla að virkni og bættri lýðheilsu nemenda þótt starfsemi framhaldsskólanna falli niður tímabundið,“ segir í tillögunni.
Íþrótta- og tómstundasviði og menningar- og ferðamálasviði er falið að útfæra tillöguna með það að markmiði að hvetja til virkni innan hefðbundins skóladags. Útfærslan verði endanlega afgreidd í borgarráði að viku liðinni.