Auglýst eftir níu yfirmönnum

Auglýsingin er á bls. 2 og 3. í atvinnublaði Morgunblaðsins …
Auglýsingin er á bls. 2 og 3. í atvinnublaði Morgunblaðsins í dag.

Auglýst er eftir níu yfirmönnum hjá Ríkisútvarpinu í opnuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. 

Um er að ræða allar stöður í framkvæmdastjórn fyrirtækisins en hún stýrir RÚV undir stjórn nýs útvarpsstjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Auk þess er auglýst eftir mannauðsstjóra.

Í öllum tilvikum er auglýst eftir fólki með háskólapróf og tekið fram að framhaldsmenntun sé æskileg. 

Umsóknarfrestur rennur út 2. apríl og er hægt að sækja um á vef Capacent.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert