Sendiráð ESB mun starfa áfram á Íslandi

ESB-fáninn blakti við hún við sendiskrifstofuna í Aðalstræti í gær.
ESB-fáninn blakti við hún við sendiskrifstofuna í Aðalstræti í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Engin áform eru um að loka skrifstofu sendinefndar ESB á Íslandi. Þetta staðfestir starfsmaður sendinefndarinnar í samtali við Morgunblaðið, en tilefnið er þau kaflaskil sem orðið hafa í aðildarviðræðum Íslands við sambandið.

Fram kemur á vef sendinefndarinnar að hún hafi stöðu sendiráðs og sé fulltrúi ESB á Íslandi.

Í Morgunblaðinu í dag kemur m.a. fram, að 11 starfsmenn eru skráðir á vef sendinefndarinnar og munu tveir hverfa til annarra starfa, í kjölfar þess að síðasta ríkisstjórn setti samningaviðræðurnar á ís í janúar 2013. Óvissa er um framhald aðildarmálsins vegna deilna um þingsályktunartillögu um ESB.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert