Kanína olli bílveltu

Bifreið með fimm ungmennum valt á Votmúlavegi upp úr miðnætti síðastliðinn laugardag. Fjögur ungmennanna hlutu minni háttar meiðsl. Bifreiðin var óökufær eftir óhappið. Ökumaður greindi frá því að hafa misst stjórn á bifreiðinni við það að kanína stökk inn á veginn í veg fyrir bifreiðina með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bifreiðinni, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Selfossi.

Snemma á föstudagsmorgun valt fólksbifreið á Suðurlandsvegi í Svínahrauni eftir að ökumaður missti stjórn á henni í hálku. Bifreiðin lenti á vegriði og kastaðist af því út af veginum hinum megin og valt. Ökumaður var einn í bifreiðinni. Hann kvartaði um eymsli í hendi, baki og mjöðm. Hann var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á slysadeild Landspítala. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert