2013 árgangurinn lítill

Minna fékkst af mörgum tegundum í vorralli Hafrannsóknarstofnunar en undanfarin tvö ár, hugsanlega vegna áhrifa annarra þátta en stofnstærðar.

Árin 2005-2013 hækkaði vísitala þorsks í vorralli mun meira en stærð viðmiðunarstofns í stofnmati. Að sama skapi eru líkur á að vísitalan í ár sem er nokkru lægri en í fyrra, vegi aðeins að hluta til lækkunar áætlaðrar stærðar viðmiðunarstofns þorsks, segir í tilkynningu frá Hafró.

Þar kemur fram að mest fékkst af þorski úti fyrir Norður- og Austurlandi, en minna fékkst á Vestfjarðamiðum og úti fyrir Suðausturlandi en undanfarin ár.

Stofnvísitala þorsks mældist lægri en undanfarin tvö ár, en vísitalan nú er samt sem áður með þeim hærri frá 1985. Í ár var vísitala allra lengdarflokka stærri en 50 cm yfir meðaltali tímabilsins, þótt minna mældist nú en í fyrra af þorski stærri en 80 cm. Vísitala 35-50 cm þorsks var undir meðaltali áranna frá 1985 sem rekja má til lélegs árgangs frá 2010. Fyrsta mat á 2013 árgangi þorsks bendir til að hann sé lítill. Hann kemur í kjölfar meðalstórra árganga frá 2008, 2009 og 2011, en árgangar 2010 og 2012 eru slakir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert