Á 155 km hraða á leið í flug

Lögreglan
Lögreglan mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Karlmaður um fertugt var staðinn að hraðakstri á Reykjanesbraut, sunnan Hafnarfjarðar, snemma á laugardagsmorgun, en bíll hans mældist á 155 km hraða. Ökumaðurinn, erlendur ferðamaður, reyndist vera ölvaður og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð.

Aðspurður um aksturslagið sagðist maðurinn hafa verið að flýta sér til að ná flugi til síns heima og bætti við að þar í landi þætti ekkert athugavert við það að neyta áfengis og setjast síðan í bílstjórasætið og aka af stað.

Ekki fylgir sögunni frá hvaða landi maðurinn var, en gera má ráð fyrir að hann hafi misst af fluginu heim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert