Illugi skrifar undir þrjá samninga

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, undirritaði í dag samninga við Bridgesamband Íslands, Skáksamband Íslands og Íþróttasamband fatlaðra. Markmið samninganna er að setja skýran ramma um ráðstöfun þess fjár sem veitt er úr ríkissjóði til starfsemi þessara aðila.

Greint er frá málinu í frétt á vef ráðuneytisins.

Í samningi ríkisins við Skáksamband Íslands segir að markmið hans sé að styrkja starfsemi Skáksambandsins. Hlutverk þess er meðal annars að efla mótahald, útbreiðslu og fræðslu í skák á landsvísu, auka upplýsingagjöf um skák og koma fram erlendis fyrir hönd skákhreyfingarinnar, að því er segir í fréttinni.

Í samningnum við Bridgesamband Íslands um ráðstöfun á framlagi á fjárlögum til starfsemi þess segir meðal annars að hlutverk þess sé að efla mótahald, útbreiðslu og fræðslu í bridge á landsvísu, auka upplýsingagjöf um bridge og koma fram erlendis fyrir hönd bridgehreyfingarinnar. 

Þá var undirritaður samningur við Íþróttasamband fatlaðra um ráðstöfun á framlögum ríkisins til starfsemi þess.

„Meginmarkmið með stuðningi ríkisins við Íþróttasamband fatlaðra er að stuðla að því að fatlaðir eigi þess kost að iðka íþróttir við sem hagstæðust skilyrði og tekur mið af gildi íþróttaiðkunar fyrir uppeldis- og forvarnastarf eins og kveðið er á um í íþróttalögum,“ segir í fréttinni.

Íþróttasamband fatlaðra skuli efla, samræma og skipuleggja íþróttastarfsemi meðal fatlaðra og koma fram fyrir hönd fatlaðra í erlendum samskiptum. Íþróttasamband fatlaðra vinni jafnframt að útbreiðslu og fræðslu viðkomandi íþróttagreina meðal fatlaðra á landsvísu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert