Kanna aðkomu einkaaðila að framkvæmdum

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað stýrihóp til að fara yfir hvaða samgönguframkvæmdir kæmu til greina í samvinnu ríkis og einkaaðila.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að ráðherrann hafi að undanförnu farið yfir með hvaða hætti mögulegt væri að fjármagna ýmis brýn samgönguverkefni með öðru móti en beinum framlögum úr ríkissjóði.

„Ljóst er að um leið og minna fé hefur á síðustu árum verið veitt í stofnframkvæmdir í vegakerfinu fer þörfin sífellt vaxandi og því hefur verið ákveðið að kanna rækilega hvaða framkvæmdir unnt væri að ráðast í með samvinnu ríkis og einkaaðila, allt frá undirbúningi og hönnun og að rekstri og þjónustu við slík mannvirki,“ segir í fréttinni.

Formaður hópsins er Helga Valfells hagfræðingur og var fyrsti fundur haldinn í ráðuneytinu nýverið.

Stýrihópnum hefur verið falið að fara yfir þau verkefni sem gætu fallið undir þetta fyrirkomulag og kanna fleiri kosti.

Stýrihópinn skipa, auk Helgu, þau Erlendur Magnússon, sjálfstætt starfandi, Jóhanna Harpa Árnadóttir, verkfræðingur, Karl Björnsson, framkvæmdastjóri og Þorsteinn Rúnar Hermannsson, verkfræðingur.

Fyrir hópinn starfar Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur í innanríkisráðuneytinu, og sérstakur fulltrúi ráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert