Tekinn tvisvar sama dag

Lögreglan við umferðareftirlit
Lögreglan við umferðareftirlit mbl.is/júlíus

Karlmaður á þrítugsaldri var um helgina tekinn í tvígang af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna fíkniefnaaksturs. Fyrst var hann stöðvaður í Árbæ, snemma á laugardagsmorgni og svo aftur í Bústaðahverfinu á laugardagskvöld.

Maðurinn hefur að sögn lögreglu aldrei öðlast ökuréttindi. Hinsvegar hefur hann alloft áður komið við sögu hjá lögreglu.

Lögregla hafði afskipt af mörgum um helgina

Tuttugu aðrir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina.

Umferðareftirlit lögreglu var víða og voru margir ökumenn stöðvaðir fyrir ýmsar sakir. Í vesturborginni voru nokkrir tekir fyrir hraðakstur, m.a. í Ánanaustum þar sem oft hefur verið kvartað undan ógætilegum akstri ökumanna.

Lögreglan var líka við hraðamælingar í Breiðholti, en í Arnarbakka var einn ökumaður sviptur ökuréttindum til bráðabirgða vegna hraðaksturs. Þá voru nokkrir tugir ökumanna stöðvaðir vegna ýmissa annarra brota. T.d. fyrir að nota ekki öryggisbelti, tala í síma án handfrjáls búnaðar, aka gegn rauðu ljósi og loks var einn ökumaður tekinn fyrir svigakstur. Hinir sömu eiga allir sekt yfir höfði sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert