Kóngurinn afhenti Guðrúnu gullverðlaunin

Guðrún Gísladóttir, prófessor í landfræði við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla …
Guðrún Gísladóttir, prófessor í landfræði við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, tekur við verðlaununum úr hendi Karls Gústafs Svíakonungs í sænsku konungshöllinni í gær.

Guðrún Gísladóttir, prófessor í landfræði við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, hlýtur Wahlberg-gullverðlaun Sænska mann- og landfræðifélagsins (Svenska Sällskapet för Antropologi och Geografi – SSAG) í ár fyrir vísindaframlag sitt á sviði landfræði. Guðrún tók við viðurkenningunni við athöfn í sænsku konungshöllinni í gær.

Guðrún lauk doktorsprófi í landfræði frá Stokkhólmsháskóla árið 1998 og hefur gegnt stöðu prófessors við Háskóla Íslands frá árinu 2006. Rannsóknir hennar hafa m.a. snúið að náttúrulandfræði, gróður- og jarðvegseyðingu, sjálfbærri nýtingu lands og náttúruvá. Þá hefur Guðrún á síðustu árum m.a. sinnt rannsóknum á bindingu kolefnis í jarðvegi en slíkar rannsóknir eru mjög þýðingarmiklar, ekki síst nú á tímum loftslagsbreytinga, segir í fréttatilkynningu.

Sænska mann- og landfræðifélagið var stofnað árið 1878. Markmið þess er að stuðla að rannsóknum í mannfræði og landfræði og úthlutar það m.a. styrkjum til vísindamanna. Þá gefur félagið út tímarit, skipuleggur málþing og ráðstefnur og verðlaunar vísindamenn sem þykja hafa skarað fram úr á sviði mannfræði og landfræði.

Gullverðlaun félagsins, sem Guðrún hlýtur, eru kennd við Johan August Wahlberg, þekktan sænskan náttúruvísindamann og landkönnuð sem uppi var á fyrri hluta 19.  aldar.  Í rökstuðningi stjórnar félagsins segir að Guðrún hljóti verðlaunin fyrir vísindaframlag til landfræði, ekki síst þekkingu hennar og rannsóknir á gróður- og jarðvegseyðingu og fyrir að stuðla að auknu samstarfi landfræðinga á alþjóðavettvangi.

Sem fyrr segir voru verðlaunin afhent í sænsku konungshöllinni í gær en það var verndari verðlaunanna, Karl Gústaf Svíakonungur, sem afhenti þau. Að auki verður haldið sérstakt málþing í Svíþjóð í haust Guðrúnu til heiðurs þar sem hún verður aðalfyrirlesari.

Guðrún ásamt Svíakonungi og Compton James Tucker, vísindamanni við NASA …
Guðrún ásamt Svíakonungi og Compton James Tucker, vísindamanni við NASA og Háskólann í Maryland, sem hlaut svokölluð Vega-verðlaun við sama tækifæri fyrir rannsóknir sínar tengdar fjarkönnun.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert