Beindu leysibendli að lögreglubíl

Sterkum leysibendi var nýverið beint að lögreglubifreið í Keflavík
Sterkum leysibendi var nýverið beint að lögreglubifreið í Keflavík Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Sterkum leysibendi var nýverið beint að lögreglubifreið í Keflavík. Lögreglumenn á Suðurnesjum voru við hefðbundið umferðareftirlit þegar þeir tóku eftir bifreið sem úr var beint grænum leysigeisla í allar áttir, þar á meðal að lögreglubifreiðinni.

Bifreiðin var stöðvuð en fjórir menn sem í henni voru könnuðust ekki við að hafa verið við þessa hættulegu iðju. Það dugði þó skammt því á gólfi bifreiðarinnar fundu lögreglumennirnir leysibendi.

Lögregla ítrekar að athæfi af þessu tagi getur skapað mikla hættu, eins og dæmi eru um, sé leysigeislum beint að farartækjum í lofti eða á láði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert