Hringspólaði við íbúðarhús

mbl.is/Hjörtur

Um kl. 22 í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um bifreið sem hringspólað var í stæði nálægt íbúðarhúsum.

Mikið ónæði kemur af þessu athæfi en ökumenn virðast lítið hugsa um umhverfi sitt, segir í frétt frá lögreglunni um málið.

Lögregla biðlar til ökumanna að sýna tillitssemi ásamt því að sýna varúð í umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert