Lögreglumenn framlengja kjarasamning

Lögreglumenn fá framlengda kjarasamninga.
Lögreglumenn fá framlengda kjarasamninga. mbl.is/Ómar Óskarsson

Samninganefnd Landssambands lögreglumanna undirritaði í dag framlengingarsamkomulag við Samninganefnd ríkisins. Samkomulagið tekur gildi frá því að síðasta framlengingarsamkomulag LL rann út, eða frá 1. febrúar 2014. Framlenging kjarasamningsins gildir til loka apríl 2015.

Fram kemur í tilkynningu frá BSRB að samkomulagið sé á svipuðum nótum og aðrir kjarasamningar sem gerðir hafa verið við aðildarfélög að undanförnu.

Helstu atriði þessa framlengingarsamkomulags eru eftirfarandi:

Gildistími: 1. febrúar 2014 – 30. apríl 2015.    Hækkun launa: 2,8% frá 1. febrúar 2014, er síðasta framlengingarsamkomulag rann út.   Eingreiðsla: Kr. 20.000,- í lok samningstímans fyrir þá sem eru í fullu starfi þann 1. febrúar 2015 og hlutfallslega fyrir þá sem eru í hlutastarfi eða starfa hluta úr mánuði.   Orlofsuppbót: Fer úr kr. 28.700,- í kr. 39.500,-.   Desemberuppbót: Fer úr kr. 52.100,- í kr. 73.600,-.

Þá eru í samningnum ákveðnar breytingar á vaktafyrirkomulagi lögreglumanna. Atkvæðagreiðsla um samkomulagið mun fara fram á næstunni og er niðurstöðu hennar að vænta þann 2. maí næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert