Víða hálka og hálkublettir

Vetur konungur minnir enn á sig um miðjan apríl.
Vetur konungur minnir enn á sig um miðjan apríl. mbl.is/Þórður Arnar Þórðarson

Það er hálka, hálkublettir eða jafnvel snjóþekja á flestum vegum á Suður- og Vesturlandi. Þannig er til dæmis hálka bæði á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vestfjörðum er einnig vetrarfærð, víðast hvar hálka eða snjóþekja.

Snjóþekja og hálka er á köflum á Norðurlandi. Öxnadalsheiði er enn lokuð en unnið er að því að aðstoða flutningabíl sem lokar veginum.

Hálka og hálkublettir eru á Mývatns- og Möðrudalsöræfum en vegir á Austurlandi eru aftur á móti víðast greiðfærir. Á Suðausturlandi eru hálkublettir frá Skeiðarársandi og vestur úr.

Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. 

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má sjá með að hringja í síma 1777.

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert