Allt að 35-45 m/s í hviðum

Snjó er farið að kyngja niður í Reykjavík.
Snjó er farið að kyngja niður í Reykjavík. mbl.is/Sunna

Nú fer farið að snjóa á höfuðborgarsvæðinu og bæta í vind, líkt og gert hafði verið ráð fyrir í veðurspá Veðurstofu Íslands. Gert er ráð fyrir að það hvessi og hlýni ört á landinu þegar líður á daginn og má reikna með snörpum hviðum milli 15 og 19 í dag undir Hafnarfjalli og sums staðar á norðanverðu Snæfellsnesi, allt að 35-45 m/s. Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og hálkubettir nokkuð víða í uppsveitum á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er að mestu greiðfært á láglendi en hálkublettir og víða éljagangur á fjallvegum og á norðanverðu Snæfellsnesi. Snjóþekja og stórhríð er á Fróðárheiði og hálka á Vatnaleið.

Vegir á Vestfjörðum eru að mestu greiðfærir á láglendi en hálkublettir eða hálka á fjallvegum. Éljagangur er einnig á flestum fjallvegum. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.

Það er víðast orðið autt á Norðurlandi vestra en þó er hálka á Þverárfjalli og hálkublettir á Vatnsskarði og Siglufjarðarvegi. Austan Eyjafjarðar eru vegir einnig að verða auðir en þó er hálka á Dettifossvegi, Hófaskarði og á Brekknaheiði.

Vegir á Austurlandi eru greiðfærir fyrir utan hálkubletti á Vatnsskarði eystra.

Greiðfært er á Suðausturlandi.

Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. 

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar í síma 1777.

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert