Gunnar Nelson valinn af lesendum

Gunnar Nelson í búrinu
Gunnar Nelson í búrinu Ljósmynd/Jón Viðar

Gunnar Nelson var valinn alþjóðlegur bardagaíþróttamaður marsmánaðar af lesendum MMA vefsins YourMMA.tv. Þá átti hann einnig uppgjafartak mánaðarins. 

Í umsögn á vefnum segir að aðdáendur Gunnras dái hann vegna þess hversu hljóðlátur hann er, vegna persónuleika hans og síðast en ekki síst vegna gríðarlega hæfileika hans í íþróttinni. "Hann sýndi þetta allt í bardaganum í London,“ segir í umsögninni. 

Gunnar vann öruggan sigur á rússanum Omari Akhmedov í byrjun mars. Bardaginn fór fram í O2-höllinni í Lundúnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert