Kirkjuhurðin líklega ónýt

Eins og sjá má á myndinni, er hurð Akureyrarkirkju nokkuð …
Eins og sjá má á myndinni, er hurð Akureyrarkirkju nokkuð mikið skemmd. Ljósmynd/Svavar Alfreð Jónsson

Kirkjuhurð Akureyrarkirkju er hugsanlega ónýt eftir að eldur var lagður að henni um klukkan fimm í nótt. Þetta segir sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur kirkjunnar, í samtali við mbl.is 

Slökkvilið Akureyrar var kallað út um klukkan fimm í nótt eftir að eldvarnarkerfi Akureyrarkirkju fór af stað. Þegar slökkvilið kom á vettvang kom í ljós að eldur hafði verið lagður að hurð kirkjunnar. 

Að sögn lögreglu var um einbeittan brotavilja að ræða, en eldfimum vökva hafði verið úðað á dyrnar og pappírsefni sett við hurðina svo vel myndi loga í henni.

Pappírinn hafði einnig verið vættur með eldfimum vökta. Ekki tók langan tíma að slökkva eldinn, en ljóst er að talsverðar skemmdir eru á hurðinni.

Ekki er vitað hver var að verki, en lögreglan á Akureyri hvetur þá sem hafa vitneskju um málið til að hafa samband. 

Frétt mbl.is: Kveikti í hurð Akureyrarkirkju

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert