Mikil umferð við Ísafjörð

Ísafjörður.
Ísafjörður. www.mats.is

Margir ætla að eyða páskahelginni á Ísafirði enda nóg um að vera, m.a. tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Lögreglan á Ísafirði segir umferðina hafa gengið stórslysalaust fyrir sig en í dag hafa að minnsta kosti tíu ökumenn verið sektaðir vegna hraðaaksturs. Annar eins fjöldi var sektaður í gær. 

Lögreglan segir að veður hafi versnað eftir því sem liðið hefur á daginn og síðdegisflugi til Ísafjarðar hafi m.a. verið aflýst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert