Snarpar vindhviður undir Hafnarfjalli

Hvessir og hlýnar ört á landinu í dag. Undir Hafnarfjalli og sums staðar á norðanverðu Snæfellsnesi er reiknað með snörpum hviðum á milli kl. 15 og 19, allt að 35-45 m/s. Greiðfært er á Suðvesturlandi en hálkublettir eru nokkuð víða á Suðurlandi.

Á Vesturlandi og Vestfjörðum er mikið orðið autt á láglendi en víða eru hálkublettir eða hálka á fjallvegum. Snjóþekja eða hálkublettir eru nokkuð víða í uppsveitum Borgarfjarðar. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.

Það er víðast orðið autt á Norðurlandi þó er hálka á Þverárfjalli og hálkublettir eru á Vatnsskarði og Siglufjarðarvegi. Austan Eyjafjarðar eru hálkublettir en hálka er þó á Hófaskarði og á Hálsum.

Á Mývatnsöræfum, Vopnafjarðarheiði og á Háreksstaðaleið eru hálkublettir en þæfingur er á Möðrudalsöræfum.

Vegir á Austurlandi eru greiðfæri fyrir utan hálkubletti á fjallvegum og snjóþekju á Vatnsskarði eystra.

Greiðfært er á Suðausturlandi.

Meðan frost er að fara úr jörð þarf víða að banna allan akstur á hálendinu til að koma í veg fyrir skemmdir á vegum og náttúru. Þeir sem hyggja á fjallaferðir eru beðnir að kynna sér ástand á viðkomandi leiðum og virða akstursbann þar sem það er í gildi. 

Vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum þarf sumsstaðar að takmarka ásþunga. Frekari upplýsingar má fá í síma 1777.

Vegna vinnu við endurnýjun á rafkerfum í Múlagöngum má búast við umferðartöfum þar yfir nóttina, frá kl. 21:00 til kl. 06:00 að morgni. Vegfarendur eru beðnir að gæta varúðar og virða hraðatakmarkanir meðan á framkvæmdum stendur.

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.

Frétt mbl.is: Bætir í vindinn eftir hádegi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert