Stigu á svið í Háskólabíói

Keppni hófst á Íslandsmótinu í fitness og vaxtarrækt í Háskólabíó klukkan 12. Alls munu 155 keppendur stíga á svið en keppnin fer fram í dag og á morgun. Alls keppa 68 keppendur í fitnessflokkum karla og kvenna, 72 í módelfitness og 15 í vaxtarrækt.

Keppt verður í tveimur nýjum flokkum að þessu sinni, módelfitness 35 ára og eldri og ólympíufitness kvenna. Á síðasta ári var keppt í sportfitness karla í fyrsta skipti á mótinu og í ár keppa 20 keppendur í þeim flokki sem er tvöfalt fleiri en kepptu í flokknum í fyrra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert