Pálmi les Passíusálmana í beinni

Pálmi Gestsson leikari
Pálmi Gestsson leikari

Pálmi Gestsson leikari les Passíusálma Hallgríms Péturssonar í heild sinni í Hólkirkju í Bolungarvík í dag, föstudaginn langa. Lestrinum verður streymt beint á facebooksíðu kirkjunnar.

Þetta er í þriðja sinn sem Pálmi les allan sálmabálkinn í Hólskirkju, en hann er sjálfur Bolvíkingur að uppruna.

Lesturinn hefst kl. 13:00 og eru allir velkomnir í kirkjunna en þeir sem ekki komast geta hlýtt á lesturinn í gegnum Facebook.

Á milli lestra verða flutt stutt tónlistaratriði af Guðrúnu B. Magnúsdóttur organista og Gunnari Hirti Hagbarðssyni, nemanda í Tónlistarskóla Bolungarvíkur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert