Undir áhrifum með barn í bílnum

Lögreglan
Lögreglan mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var um miðjan dag í dag tilkynnt um aðfinnsluvert aksturslag ökumanns sem var á Hellisheiðinni á leið til Reykjavíkur.

Sá sem hringdi taldi víst að ökumaðurinn væri undir einhverjum áhrifum og vakti því sérstaka eftirtekt að hann var með barn í bílnum.

Lögregla fór til móts við bílinn og stöðvaði ökumanninn. Tekin voru sýni og er hann nú vistaður í fangageymslu vegna frekari rannsóknar á málinu.

Að sögn lögreglu var starfsmaður barnaverndar kallaður til, vegna barnsins sem var í bílnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert