Kveikt í þremur ruslagámum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan eitt í nótt vegna elds í ruslagámum í húsasundi við Laugaveg í Reykjavík. Þegar á staðinn kom logaði glatt í þremur plastgámum. Lögreglan hafði byrjað slökkvistarf og tók slökkviliðið við. Greiðlega gekk að slökkva eldinn.

Talsverðar skemmdir urðu á tréverki við gámana fyrir utan skemmdir á gámunum sjálfum. Eldsupptök hafa ekki verið staðfest en talið er að um íkveikju hafi verið að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert