Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út skömmu fyrir hádegi í dag vegna bráðaveikinda sem upp komu í sumarbústað á Skógarströnd. Þyrlan flaug til móts við sjúkrabifreið úr Búðardal, að því er segir í frétt á vefnum Búðardalur.is.
Læknir í Búðardal mat ástand sjúklingsins þannig að kalla þyrfti til þyrlu Landhelgisgæslunnar. Hún mætti sjúkrabifreðinni við félagsheimilið Lyngbrekku á Mýrum.
EKki liggja fyrir upplýsingar um líðan sjúklingsins að svo stöddu.