Víða hálka og hálkublettir

mbl.is/Ómar

Hálka er á Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en hálkublettir á Mosfellsheiði sem og víða í uppsveitum og á útvegum á Suðurlandi. Snjóþekja er á Lyngdalsheiði. Vestanlands er snjóþekja á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Vatnaleið og á Svínadal. Þæfingsfærð og éljagangur er á Fróðárheiði en annars er víða hálka eða hálkublettir.

Gengið hefur á með éljum á Vestfjörðum og þar er víða hálka á láglendi en sumsstaðar snjóþekja eða hálka á fjallvegum. Þæfingsfærð er á Mikladal, Hálfdán og Kleifarheiði. Ekki búið að skoða færð á Steingrímsfjarðarheiði en þungfært er á Þröskuldum og gert er ráð fyrir mokstri upp úr klukkan 10. Ófært er norður í Árneshrepp.

Norðanlands er snjóþekja í Hrútafirði og á Þverárfjalli en hálkublettir á nokkrum útvegum. Þæfingsfærð er á Öxnadalsheiði en mokstur stendur yfir. Greiðfært er að heita má um allt austanvert landið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert