Á Landspítala eftir fjórhjólaslys

mbl.is/Hjörtur

Konan sem slasaðist í fjórhjólaslysi nærri Miðhúsum á Snæfellsnesi fyrir í hádegi í dag er komin undir læknishendur á Landspítalanum þar sem hún gengst nú undir rannsóknir, samkvæmt upplýsingum frá lækni.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 11:54 fyrr í dag að beiðni læknis í Ólafsvík.

Var þyrlan TF-LÍF þá í æfingum við Skorradalsvatn og snéri tafarlaust til Reykjavíkur til eldsneytistöku. Fór hún að nýju í loftið kl. 12.40 og og lenti við bæinn Miðhús á Snæfellsnesi kl. 13.04 þar sem sjúkrabíll beið með hina slösuðu sem var flutt um borð í þyrluna. Farið var að nýju í loftið kl. 13.18 og lent við Landspítalann í Fossvogi kl. 13.50, sagði í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Frétt mbl.is: Slasaðist á fjórhjóli

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert