Keyrði inn í bílskúr í Borgarnesi

Borgarnes
Borgarnes mbl.is/Styrmir Kári

Ökumaður í Borgarnesi ók bílnum sínum beinustu leið inn í bílskúr við húsi í Þorsteinsgötu rétt fyrir klukkan níu á páskadagsmorgun í gær. Greint er frá málinu í frétt á vef Skessuhorns.

Að sögn lögreglu blindaðist ökumaðurinn af sól sem var lágt á lofti þennan morgun með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bílnum sem fór beinustu leið yfir grindverk og inn í bílskúrinn. Nokkuð tjón varð á bílskúrnum og á grindverki, að því er segir í fréttinni, en einnig urðu skemmdir á bílnum sem ekið var og á bíl sem var inn í bílskúrnum.

Ökumann sakaði ekki. Málið telst upplýst að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert