Tók „fagnaðarhring“ á íþróttavellinum

Það er alltaf gaman að fá bílpróf. En stilla ber …
Það er alltaf gaman að fá bílpróf. En stilla ber fagnaðarlátum í hóf.

Ungur ökumaður á Akranesi missti sig örlítið í gleðinni yfir að hafa fengið bílpróf og tók einn fagnaðarhring um áhorfendasvæðin á íþróttavellinum á Jaðarsbökkum á lítilli jeppabifreið.

Í frétt frá lögreglunni á Akranesi segir að ekki hafi orðið miklar skemmdir af tiltækinu. Má hann hins vegar búast við að þurfa að bæta það tjón sem hann olli.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir af lögreglunni á Akranesi um helgina grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar reyndist vera undir áhrifum kannabisefna en hinn var undir áhrifum kókaíns og amfetamíns. Báðir voru þeir handteknir og sleppt að lokinni töku blóðsýna- og skýrslutöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert