Sumarhúsið gjörónýtt

Ekki var hægt að bjarga litlu sumarhúsi við Hafravatn sem varð eldi að bráð í kvöld. Þegar slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang var húsið alelda. Eldurinn er nú slokknaður og unnið er að því að slökkva í glæðum. Húsið er gjörónýtt.

Ekki liggur fyrir hvað olli því að eldur kom upp í sumarhúsinu en rannsókn á því er hafin.

Frétt mbl.is: Sumarhús alelda við Hafravatn

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert