33 óku of hratt á Bæjarbraut

mbl.is/Eggert

Brot 33 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að fylgst hafi verið með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut.

Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrír óku á 70 km hraða eða meira. Sá sem hraðast ók mældist á 85 km/klst.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert