Gagnrýna áform Landsbankans

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson Rósa Braga

Tveir stjórnarþingmenn gagnrýna harðlega áform Landsbankans um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrir bankann á byggingarreit 6 við Hörpu.

„Ég sé engar forsendur fyrir því að fara að byggja nýjar höfuðstöðvar Landsbankans á besta stað í borginni,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrsti varaformaður fjárlaganefndar Alþingis.

Eigum eftir að fara í ýmis mál sem varða bankakerfið okkar

„Þetta er ríkisbanki og margt sem að honum snýr er í óvissu eins og margoft hefur komið fram. Við eigum eftir að fara í ýmis mál sem varða bankakerfið okkar og það síðasta sem við eigum að fara í núna eru höfuðstöðvar og bankabónusar,“ segir Guðlaugur Þór.

Spurður hvort stjórnendur bankans ráði þessu endanlega eða hvort ríkið geti gripið inn í þessi áform þar sem um banka í eigu ríkisins er að ræða segir Guðlaugur Þór sérstjórn yfir bankanum sem valin er af Bankasýslunni, sem á að halda utan um eignarhlut ríkisins. „Ég veit ekki hvernig umræðan er þar um þessi mál en þetta er mjög skýrt í mínum huga,“ segir hann.

Ekki rétt forgangsröðun

Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, hefur gagnrýnt tilboð Landsbankans í byggingarréttinn á lóðinni við Austurhöfn og áform bankans um að reisa þar allt að 15 þúsund fermetra höfuðstöðvar.

Í framhaldi af umræðu um þessi áform Landsbankans í fyrra gaf Landsbankinn út yfirlýsingu þar sem sagði að bankinn hefði ekki, ólíkt því sem fram hafi komið, sótt um tilgreinda lóð í Reykjavík heldur aðeins óskað eftir viðræðum við borgina um þá möguleika sem fyrir hendi væru.

Í yfirlýsingunni útilokaði bankinn þó ekki að til þess gæti komið að byggt yrði við hlið Hörpu. Í byrjun apríl sl. birtust svo þær fréttir að Sítus ehf., sem fer með ráðstöfun lóðanna á Hörpureit, hefði ákveðið að ganga til samninga við Landsbankann vegna tilboðs bankans í byggingarréttinn á reit 6.

Frosti minnir á að Landsbankinn er ríkisbanki og það sé alls ekki rétt forgangsröðun ríkisins sem hluthafa í bankanum að ráðast í byggingu nýrra höfuðstöðva á dýrasta stað í bænum. Fjármununum yrði betur varið með því að nota arðgreiðslurnar til ríkisins, t.d. í lækkun skulda ríkissjóðs eða til að mæta fjárþörf Landspítalans.

Vekur furðu að heildarkostnaður liggi ekki fyrir

Frosti hefur sent fyrirspurnir vegna málsins til bankastjóra Landsbankans og formanns bankaráðsins en fengið takmörkuð svör að hans sögn. Spyr Frosti meðal annars hvort tilboð bankans í reit 6 sé bindandi, hvort einhver kostnaður falli til ef fallið verður frá tilboðinu, hvort ekki sé hagkvæmara að byggja á ódýrari lóð og hvort bankaráðið hafi gefið heimild til að gera þetta tilboð og ganga til samninga við Sítus ehf. um byggingarréttinn á lóðinni.

Þá hefur hann einnig sent bréf vegna þessa til forstjóra Bankasýslunnar og fjármálaráðherra, þar sem hann bendir á að þessi fjárfesting eigi ekki að vera framarlega í forgangsröðinni.

Frosti segist hafa fengið þau svör frá bankastjóra Landsbankans að heildarkostnaðurinn liggi ekki fyrir og vekur það furðu hans. „Menn sem þekkja til bygginga af þessari tegund segja að ekki sé hægt að byggja á þessum stað fyrir lægri fjárhæð en fimm til sjö milljarða,“ segir Frosti.

Hann segir að ef stjórnendur bankans telji að það sé hluthöfunum fyrir bestu að byggja nýjar höfuðstöðvar vakni sú spurning hvort bankaráðið sé með á nótunum.

„Þeir gera mikið úr því að það sé mikil hagræðing í því fólgin að hafa höfuðstöðvarnar undir einu þaki á besta stað í bænum. Þeir eru nú þegar með útibú á besta stað í bænum sem getur vel þjónað öllum þeim sem eru í miðbænum. Auk þess er fullt af auðu skrifstofuhúsnæði í borginni. Þjóðin þarf ekki að byggja meira skrifstofuhúsnæði. Aðrar þarfir eru brýnni,“ segir Frosti.

Röng og óheppileg skilaboð út í alþjóðasamfélagið

Að mati hans er margt gagnrýnivert við þessi áform bankans, m.a. þau skilaboð sem í þessu felast gagnvart umheiminum.

„Hér varð bankahrun fyrir stuttu og mikill fjöldi fólks hefur tapað gríðarlegum peningum á bankaviðskiptum á Íslandi og einnig erlendir aðilar. Hvaða skilaboð eru það að ríkisbankinn byggi sér glæsilegar höfuðstöðvar á dýrasta stað? Það eru mjög röng og óheppileg skilaboð út í alþjóðasamfélagið,“ segir Frosti Sigurjónsson.

Frosti Sigurjónsson
Frosti Sigurjónsson mbl.is/Ómar Óskarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert