Skólpmengun í Pollinum

Akureyri
Akureyri Sigurður Bogi Sævarsson

Vegna framkvæmda við fráveitukerfið á Akureyri þarf að slökkva á skólpdælustöðvum og það  veldur yfirfalli. Þetta þýðir að skólp mun fara á yfirfallsútrásir stöðva með þeim afleiðingum að það fer út í sjóinn. Því má gera ráð fyrir töluverðri skólpmengun í Pollinum og við Oddeyrartanga næstu daga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurorku. Þar segir að slökkva þurfi á skólpdælustöðvum í Hafnarstræti, við Torfunef, í Laufásgötu og á Silfurtanga. „Kappkostað verður að dæling stöðvist í eins skamman tíma og kostur er. Vonast er til að hægt verði að gangsetja dælur aftur síðdegis þennan sama dag.“

Skólpdælustöðvar eru hannaðir með þeim hætti að ef bilun verður eða ef nauðsynlegt er að stöðva dælingu vegna viðhalds þá fara þær á svonefnt yfirfall. Þetta þýðir að skólp mun fara á yfirfallsútrásir í nágrenni viðkomandi stöðva.

Af þessum sökum er íbúum á Akureyri og gestum bent á að sjórinn og ströndin eru ekki hæf til sjósundiðkunar eða útivistar á umræddum tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert