Kostnaður við Evrópuskýrslu 27 milljónir

AFP

Kostnaður vegna vinnu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands að skýrslu um úttekt á stöðu aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandsið og þróun sambandsins nam um 27,4 milljónum króna.

Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Svandísar Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.

Þar segir jafnframt að heildarkostnaður ráðuneytisins vegna ráðgjafarþjónustu á tímabilinu 1. júlí 2013 til 15. mars 2014 hafi numið 48,3 milljónum króna. Þá var kostnaður vegna ráðgjafarþjónustu almannatengslafyrirtækisins Burson-Marsteller í tengslum við makríldeiluna um 10,6 milljónir króna, að því er segir í svarinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert