Nefnd skipuð um málefni hinsegin fólks

Skipuð hefur verið nefnd um málefni hinsegin fólks.
Skipuð hefur verið nefnd um málefni hinsegin fólks. Ómar Óskarsson

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað nefnd um málefni hinsegin fólks sem falið er að vinna áætlun um samþættar aðgerðir til að bæta stöðu hinsegin fólks í landinu. Nefndin á að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. október 2014. Þetta kemur fram í frétt á vef velferðarráðuneytisins. 

Nefndin er skipuð í samræmi við ályktun Alþingis sem samþykkt var 15. janúar síðastliðinn. Formaður nefndarinnar er Aðalbjörn Jónsson. Aðrir nefndarmenn eru:

  • Anna Pála Sverrisdóttir, tilnefnd af Samfylkingunni
  • Bergljót Þrastardóttir, tilnefnd af Jafnréttisstofu
  • Daníel Haukur Arnarsson, tilnefndur af Vinstrihreyfingunni - grænt framboð
  • Davíð Þór Jónsson, tilnefndur af þingflokki Pírata
  • Guðrún Ólafsdóttir, tilnefnd af Q-félagi hinsegin stúdenta
  • Hafþór Eide Hafþórsson, tilnefndur af þinglokki Framsóknarmanna
  • Margrét Steinarsdóttir, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands
  • Ragnheiður Ríkharðsdóttir, tilnefnd af þingflokki Sjálfstæðisflokksins
  • Reynir Þór Eggertsson, tilnefndur af þingflokki Bjartrar framtíðar
  • Svandís Anna Sigurðardóttir, tilnefnd af Samtökum '78
  • Ugla Stefanía Jónsdóttir, tilnefnd af Trans Ísland.

Starfsmaður nefndarinnar er Linda Rós Alfreðsdóttir, sérfræðingur í velferðarráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert