Hverfisskipulagið fellt

Borgarráð samþykkti einróma í gær að fella tillögu umhverfis- og skipulagsráðs um hverfisskipulag fyrir hina ýmsu borgarhluta.

Upphaflega átti að vísa málinu aftur til umhverfis- og skipulagsráðs, en eftir að fulltrúar Sjálfstæðisflokks í ráðinu kröfðust þess að greidd yrðu atkvæði um tillöguna var gert hlé á fundi.

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir  í Morgunblaðinu í dag að samstaða hefði myndast í ráðinu um að ekki væri hægt að halda vinnunni áfram og byggja á fyrirliggjandi gögnum því þau væru villandi. Vísaði hann til bókunar borgarráðs sem var svohljóðandi: „Ekki er hægt að halda áfram vinnu við gerð hverfisskipulags á grundvelli fyrirliggjandi matslýsinga þar sem þær eru villandi í mikilvægum atriðum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert