Slökkviliðsmenn fóru inn um glugga á íbúð við Týsgötuna um níuleytið til þess að bjarga manni úr íbúð þar sem pottur hafði gleymst á eldavél. Töluverður reykur var í íbúðinni en maðurinn var sofandi þegar slökkviliðið kom á staðinn. Var maðurinn fluttur á slysadeild þar sem talið er að hann hafi fengið snert af reykeitrun.
Einhverjar skemmdir urðu á íbúðinni vegna reyks.