Ók á sex bíla

mbl.is/Hjörtur

Einn var fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á sex bíla við Tangarhöfða nú á ellefta tímanum.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er maðurinn ekki alvarlega slasaður en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvað olli því að maðurinn missti stjórn á bifreið sinni með fyrrgreindum afleiðingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert