Skora á Hönnu Birnu að segja af sér

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Ungir jafnaðarmenn skora á innanríkisráðherra að segja af sér, vegna „ófaglegra vinnubragða í máli hælisleitandans Tony Omos“. Í ályktun, sem miðstjórn UJ samþykkti í dag, segir að Hanna Birna Kristjánsdóttir og aðstoðarmenn hennar hafi ítrekað sagt ósatt um minnisblað sem lekið var til fjölmiðla.

Í minnisblaðinu koma fram viðkvæmar persónuupplýsingar um hælisleitandann, barnsmóður hans og aðra aðila. Tilgangurinn með minnisblaðinu, sem gert var að kröfu yfirstjórnar ráðuneytisins, var augljóslega að sverta mannorð Tonys, sem senda átti úr landi,“ segir í ályktuninni.

Á Alþingi hinn 27. janúar síðastliðinn þvertók Hanna Birna fyrir að minnisblaðið væri til í ráðuneytinu. Nýjar upplýsingar í málinu sýna hins vegar að skrifstofustjóri ráðuneytisins lét útbúa minnisblaðið sem hann sendi Hönnu Birnu og aðstoðarmönnum hennar í tölvupósti. Þar að auki var minnisblaðið vistað á opnu drifi innan ráðuneytisins. Því liggur fyrir að Hanna Birna var fullkomlega meðvituð um tilvist minnisblaðsins,“ segir í ályktuninni.

Auk þess að segja ósatt um vitneskju sína um minnisblaðið hafa Hanna Birna og aðstoðarmenn hennar varpað fram þeirri hugmynd að minnisblaðið hafi komið frá pólitískum andstæðingum hennar. Einnig hafa þau ítrekað sakað fjölmiðla um rógburð í garð ráðherrans. Í lýðræðisríki er það óboðlegt að ráðherra ráðist með þessum hætti að fjölmiðlum vegna eðlilegrar umfjöllunar um störf hans.

Hanna Birna hefur fyrirgert trausti þjóðarinnar með því að fara viljandi með rangt mál í fjölmiðlum og í ræðustól Alþingis. Hanna Birna hefur jafnframt ekki nálgast málið af æðruleysi heldur þvert á móti unnið markvisst gegn því að ráðuneyti hennar verði tekið til rannsóknar. Þá hefur hún ráðist á fjölmiðla og reynt að kæfa eðlilega lýðræðislega umræðu um málið. Öllum má vera það ljóst að slík vinnubrögð eru með öllu ólíðandi fyrir ráðherra, þess þá heldur ráðherra dómsmála. Ungir jafnaðarmenn krefjast því þess að Hanna Birna segi af sér án tafar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert