Engar stórframkvæmdir í samgöngumálum

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vill ráðast í framkvæmdir á stofnbrautakerfinu í …
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vill ráðast í framkvæmdir á stofnbrautakerfinu í Reykjavík með umferðaröryggi og arðbærni að leiðarljósi. mbl.is/Ómar

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins segir að engar stórframkvæmdir verði í samgöngumannvirkjum í Reykjavík til ársins 2022. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins hafi lagst gegn því að endurskoða samgöngusamning ríkisins og borgarinnar.

Á fundi borgarstjórnar í dag var tekin fyrir eftirfarandi tillaga Sjálfstæðisflokksins:

„Borgarstjórn Reykjavíkur felur borgarstjóra að óska eftir endurskoðun á samgöngusamningi ríkisins og Reykjavíkurborgar með það að markmiði að á samningstímabilinu verði ráðist í stórframkvæmdir í samgöngumálum í Reykjavík með umferðaröryggi og arðbærni að leiðarljósi.“

Kjartan, sem er flutningsmaður tillögunnar, segir í tilkynningu að umræddur samningur hafi verið gerður í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar og með stuðningi borgarfulltrúa Samfylkingar og Besta flokksins. Samningurinn hafi tekið gildi á árinu 2012 og feli í sér að hætt verði við allar stórar samgönguframkvæmdir í Reykjavík á samningstímabilinu, þ.e. frá 2012-2022. Á sama tíma muni hins vegar tugir milljarða renna til samgönguframkvæmda í öðrum kjördæmum landsins.

„Meirihluti Samfylkingar og Besta flokksins/Bjartrar framtíðar lagðist gegn því að tillagan yrði borin upp til atkvæða á fundinum en lét þess í stað vísa henni til borgarráðs. Gerðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins athugasemd við þá afgreiðslu í fundargerð,“ segir hann ennfremur.

Þá tekur Kjartan fram, að í umræðum á fundinum hafi komið fram að borgarfulltrúar Samfylkingar og Besta flokksins vilji ekki endurskoða umræddan samning með það að markmiði að á samningstímabilinu verði ráðist í framkvæmdir á stofnbrautakerfinu í Reykjavík með umferðaröryggi og arðbærni að leiðarljósi.

„Sem fyrr styður Sjálfstæðisflokkurinn að Reykvíkingar eigi val um ólíka samgöngukosti um leið og stuðlað er að auknu umferðaröryggi allra vegfarenda, hvort sem þeir nota almenningssamgöngur, bifreiðar, hjól eða tvo jafnfljóta.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert