Leitað að þremur stúlkum

Björgunarsveitarmenn að störfum.
Björgunarsveitarmenn að störfum. Landsbjörg

Björgunarsveitir á Austurlandi leituðu í gærkvöld að þremur níu ára gömlum stúlkum á Egilsstöðum. Stúlkurnar fóru heiman frá sér eftir kvöldmat, með teppi og nesti, en skiluðu sér ekki á tilsettum tíma.

Súlkurnar fundust svo heilar á húfi í húsi hjá ættingjum og höfðu gengið 16 km til að komast þangað, samkvæmt tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert