Nauðgunin tekin upp á myndband

Myndbandsupptaka sem sýnir hópnauðgun í Breiðholti sem kærð var á miðvikudag er í dreifingu á netinu. Þetta herma heimildir mbl.is. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, sagðist í samtali við blaðamann ekki geta tjáð sig um þetta atriði að svo stöddu.

Fimm piltar á aldrinum 17 – 19 ára voru handteknir á miðvikudagskvöld, grunaðir um að hafa nauðgað 16 ára stúlku í samkvæmi í austurhluta borgarinnar um helgina. Kæra í málinu var lögð fram síðdegis á miðvikudag.

Pilt­arn­ir voru hand­tekn­ir strax í kjöl­far þess að kæra var lögð fram í málinu og hef­ur lög­regla lagt fram kröfu um einn­ar viku gæslu­v­arðhald yfir þeim öll­um. Piltarnir verða áfram í haldi lög­reglu þar til úr­sk­urður dóm­ara ligg­ur fyr­ir en það verður fyrir hádegi í dag.

Frétt mbl.is: Grunaðir um hópnauðgun

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert