Á ekki við fasteignalán í erlendri mynt

AFP

Fjármálaráðherra segir að frumvarp til laga um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána gildi eingöngu um verðtryggð lán á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Þau fasteignaveðlán í erlendri mynt sem annarlega teljist lögleg falli ekki þar undir.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Pírata, um húsnæðislán í erlendum gjaldmiðli.

Fyrirspurnin hljóðar svo:

„Eiga lántakendur von á leiðréttingu húsnæðislána sem tekin voru á árunum fyrir hrun íslenska fjármálakerfisins haustið 2008 og telja má að séu sambærileg lánum sem dómstólar hafa ákvarðað sem lán í erlendum gjaldmiðli?“

Fram kemur í svarinu, að frumvarp til laga um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar liggi nú fyrir Alþingi. Samkvæmt frumvarpinu sé rétthöfum séreignarsparnaðar heimilt, á tímabilinu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017, að nýta viðbótariðgjald til greiðslu inn á höfuðstól lána sem tekin eru vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Lán sem myndi stofn til útreiknings vaxtabóta og séu tryggð með veði í íbúðarhúsnæði uppfylli skilyrði frumvarpsins, óháð því í hvaða gjaldmiðli lánin séu.

Um sé að ræða skattfrjálst úrræði sem sé tímabundið og gildi í þrjú ár. Samkvæmt frumvarpinu geti fjölskylda með 800 þúsund krónur í laun á mánuði lækkað fasteignalán sitt um 250.000 vegna iðgjalda á tímabilinu júlí til desember 2014.

„Frumvarp til laga um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána (þskj. 837 í 485. máli) gildir hins vegar eingöngu um verðtryggð lán á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Þau fasteignalán í erlendri mynt sem sannarlega teljast lögleg falla ekki þar undir,“ segir í svarinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert