Flugvallarstarfsmenn samþykktu

mbl.is/Sigurgeir

Kjarasamningur Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR), Stéttarfélags í almannaþjónustu (SFR) og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) við Samtök atvinnulífsins og Isavia hefur verið samþykktur.

Fram kemur í tilkynningu, að kjarasamningurinn, sem hefur verið undirritaður, hafi verið samþykktur með meirihluta atkvæða allra félagsmanna.

Alls samþykktu 72,95% félagsmanna samninginn, 24,62% félagsmanna höfnuðu honum og alls 2,43% félagsmanna skiluðu auðu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert